Surtsey

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Surtsey er syðsta eyjan í Vestmannaeyjaklasanum. Hún er jafnframt sú eina þeirra sem hefur myndast á sögulegum tíma, eða í mesta neðansjávareldgosi á sögulegum tíma. Menn urðu gossins varir klukkan 7:15 að morgni þess 14. nóvember 1963, þegar það braust upp úr yfirborði sjávar skammt frá fiskibátnum Ísleifi II frá Vestmannaeyjum. Skipverjar mældu sjávarhita í hálfrar mílu (rúmlega 900m) fjarlægð og reyndist hitastigið vera nálægt 10°C. Gosið magnaðist hratt og varð hár gosmökkur. Næsta morgun sást í gosmekkinum að eyja hafði myndast. Er því ljóst að gosið hefur hafist einhverjum dögum áður en þess varð vart. Þann 12. nóvember fannst brennisteinslykt í lofti í suðvestanátt í Vík í Mýrdal, en engra jarðhræringa hafði orðið vart dagana fyrir uppkomu gossins. Gosið stóð fram til 5. júní 1967 eða í um það bil þrjú og hálft ár. Síðan þá hefur flatarmál eyjunnar minnkað úr 2,7 km2 í 1,4 km2 sökum rofs sjávar og vinda. Eyjan er um 20 km suðvestur af Heimaey, eða um 30 km suðvestur af Landeyjasandi á meginlandi Íslands.

Surtsey hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO frá 7. júlí 2008.

Surtsey er friðlýst, og er því á náttúruminjaskrá, umferð þangað er aðeins leyfð í vísindaskyni. Surtseyjarfélagið hefur eyjuna í umboði umhverfisstofnunar.

 

Surtsey er friðlýst.

South Iceland

570 Views

Surtsey

Eyjan er einstök á heimsvísu.

Algengar spurningar

Hvar er Surtsey?
Surtsey er eyja suður af Íslandi.
Tilheyrir Surtsey sveitarfélagi?
Já, Surtsey tilheyrir Vestmannaeyjum.
Er Surtsey byggð?
Nei, Surtsey er óbyggð.
Er Surtsey friðlýst eða vernduð?
Já, Surtsey er friðlýst náttúruverndarsvæði.
Er hægt að heimsækja Surtsey?
Nei, almennum gestum er ekki heimilt að heimsækja eyjuna.