Sundlaug Neskaupstaðar

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Staðsetning: Miðstræti 15 Neskaupstað

Hvenær byggð (ef lauginni hefur verið breytt eða hún endurnýjuð má það gjarnan koma fram hér líka): Byggð 1943. Tekin í notkun eftir breytingar 2006 (Nýtt þjónustuhús, laug flísalögð, nýjir pottar, 2 stórar rennibrautir, sauna og líkamsrækt á neðri hæð)

Stutt lýsing á lauginni: 25 metra löng útilaug, 2 heitir pottar, 1 vaðlaug, sauna, inni- og útibúningsklefar,

2 vatnsrennibrautir. Í sama húsi er líkamsræktarstöð

Aðsóknartölur í fyrra ef þær liggja fyrir: 44.860 gestir árið 2011

Árið 1949 kom mikið aurflóð úr fjallinu fyrir ofan bæinn og fyllti laugina og gamla laugarhúsið. Árið 1989 Fylltist laugin aftur, en í það skiptið vegna mikils fannfergis. Í bæði skiptin tóku bæjarbúar sig saman og mokuðu upp úr lauginni.

Í búningsklefa laugarinnar er einnig að finna tvær veggklukkur. Önnur er merkt stóra Moskva en hin litla Moskva. Heimamenn skemmta sér oft við það að hlusta á útskýringar aðkomu manna hvernig á þessu standi. Sannleikurinn er sá að eftir margra áratuga ítök vinstri manna í bæjarpólitíkinni var farið kalla bæinn litlu Moskvu. Klukkurnar á veggnum sýna því einfaldlega íslenskan og rússneskan staðartíma.

Í bókinni „Vetur nótta kyrrur“ eftir Jónas Árnason er einnig að finna skemmtilega sögu „Kóngurinn í Svíþjóð“ en sögusviðið er að hluta til umrædd sundlaug.

Opnunartímar: Sumaropnun 1. júní til 1. September. Sundlaug og líkamsræktarstöð

Mánudaga – föstudaga

Laugardaga og sunnudaga

6:00 – 20:00

10:00 – 18:00

Símanúmer og netfang: 477-1243 & itn@fjardabyggd.is

Heimild: Sjá hér
Mynd: Sundlaug Neskaupsstaðar

Sundlaug Neskaupstaðar er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

Reviews

Sundlaug Neskaupstaðar

Sundlaug Neskaupstaðar er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er sundlaug Neskaupstaðar?
Sundlaug Neskaupstaðar er á Austurlandi.
Er sundlaug Neskaupstaðar í þéttbýli?
Já, hún er í þéttbýli.
Er sundlaug Neskaupstaðar opin almenningi?
Já, hún er opin almenningi.
Er sundlaug Neskaupstaðar skipulögð baðaðstaða?
Já, hún er skipulögð sundlaug.
Er sundlaug Neskaupstaðar rekin af sveitarfélagi?
Já, hún er rekin á vegum sveitarfélags.