Súðavíkurkirkja er kirkja í Súðavík sem er bær við Álftafjörð í Ísafjarðardjúpi. Hún var vígð á páskunum 1963. Þessi kirkja hafði upphaflega verið byggð norður á Hesteyri í Sléttuhreppi árið 1899 og stóð þar í sex áratugi, en nokkru eftir að sóknin var öll komin í eyði var kirkjuhúsið tekið niður, flutt sjóveg yfir Djúpið til Súðavíkur og endurbyggt þar. Kirkjuyfirvöld gáfu leyfi sitt, gegn andmælum Hesteyringa, að rífa kirkjuna og byggja hana upp að nýju í Súðavík. Hesteyringar litu svo á að verið væri að ráðstafa kirkju þeirra í leyfisleysi, og spunnust um þetta miklar deilur í blöðum.
Heimild: Sjá hérMynd: A.More.S
Súðavíkurkirkja er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
No reviews have been published yet.
Sign in to rate this place
Súðavíkurkirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
We use optional analytics cookies to understand how the website is used.