Æðey er stærsta eyja Ísafjarðardjúps, skammt undan Snæfjallaströnd. Hún dregur nafn sitt af góðu æðarvarpi sem þar er að finna. Eyjan er láglend, hæsti punktur í 34 metra hæð, en nokkuð hólótt. Eyjan er algróin og er þar mikið fuglalíf.
Í Æðey var eitt sinn kirkja og síðar bænhús. Hún tilheyrir í dag Unaðsdalssókn en tilheyrði áður Snæfjallasókn og var þjónað þaðan. Í eynni er góð lending og var þar viðkomustaður djúpbátsins. Þar hefur verið mönnuðveðurathugunarstöð síðan 1946. Aðrar eyjur í Ísafjarðardjúpi eru Vigur og Borgarey og er Borgarey minnst og innst.
Heimild: Sjá nánar
Æðey er þekkt fyrir fuglalíf.
No reviews have been published yet.
Sign in to rate this place
Eyjan hentar vel fyrir náttúruskoðun.
We use optional analytics cookies to understand how the website is used.