Gróttuviti

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Fyrst var byggður viti í Gróttu árið 1897 að fyrirsögn starfsmanna dönsku vitastofnunarinnar. Núverandi viti var reistur hálfri öld síðar, árið 1947, sívalur kónískur turn úr steinsteypu með ensku ljóshúsi, 24 m að hæð, hannaður af Axel Sveinssyni verkfræðingi. Upphaflega var vitinn húðaður utan með ljósu kvarsi en hefur nú verið kústaður með hvítu þéttiefni.

Linsan sem sett var í vitann frá 1897 er enn í notkun í Gróttuvita. Gastæki var sett í vitann er hann var tekinn í notkun en hann var rafvæddur árið 1956.

Vitavörður var búsettur í Gróttu frá 1897 til 1970. Vitaverðirnir voru aðeins tveir, Þorvarður Einarsson og Albert sonur hans. Vitavarðarhúsin hafa nú verið gerð upp og eru í eigu Seltjarnarnesbæjar.

Heimild: Sjá hér
Mynd Sunna Wium

Vitinn stendur við sjóinn.

West Iceland

1,462 Views

Gróttuviti

Mjög vinsæll göngustaður.

Algengar spurningar

Hvar er Gróttuviti?
Gróttuviti er við Seltjarnarnes.
Er Gróttuviti við sjó?
Já, hann stendur við strönd.
Er Gróttuviti virkur?
Já, hann er virkur leiðarviti.
Er Gróttuviti sögulegur?
Já, hann hefur sögulegt gildi.
Er hægt að heimsækja Gróttuvita?
Já, hægt er að ganga að honum þegar fjara er.