Akranesviti

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Tveir vitar standa utarlega á Skipaskaga. Sá eldri er utarlega á Syðriflös, steinsteyptur turn, byggður árið 1918. Ljóshús hans hefur verið endurnýjað og er ekki upprunalegt og þessi viti, sem hannaður er af Thorvald Krabbe verkfræðingi, hefur ekki verið í notkun síðan árið 1947 að kveikt var á nýrri vitanum sem stendur skammt ofan við flösina.

Nýrri Akranesvitinn, sem byggður var á árunum 1943–1944 eftir teikningum Axels Sveinssonar verkfræðings, en tekinn í notkun 1947, er 22,7 m á hæð, sívalur kónískur turn úr steinsteypu og ljóshúsið er sænskt. Stoðveggir, átta talsins, ganga út frá sökkli. Vitinn var húðaður með ljósu kvarsi í upphafi en hefur nú verið kústaður með ljósu þéttiefni.

Ljóstæki eru ensk og vegna seinni heimsstyrjaldarinnar varð dráttur á afhendingu þeirra sem seinkaði því að vitinn yrði tekinn í notkun. Gasljós var í vitanum í byrjun, magnað með 500 mm katadíoptrískri linsu, en árið 1956 var hann rafvæddur.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Sverrir

Akranesviti er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

West Iceland

1,591 Views

Akranesviti

Akranesviti er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er Akranesviti?
Akranesviti er á Akranesi.
Er Akranesviti við sjó?
Já, hann er við strönd.
Er Akranesviti virkur?
Já, hann er virkur leiðarviti.
Er Akranesviti sögulegur?
Já, hann hefur sögulegt gildi.
Er hægt að heimsækja Akranesvita?
Já, hann er aðgengilegur almenningi.