Raufarhafnarviti var byggður árið 1931 eftir teikningu Benedikts Jónassonar verkfræðings. Vitinn er steinsteyptur með sívölu sænsku ljóshúsi. Gasljós var í honum fram til 1963 að hann var rafvæddur.
Raufarhafnarviti var upphaflega hvítur að lit en var málaður gulur á 7. áratug 20. aldar. Að litaskiptunum fráteknum heldur hann vel upprunalegu útliti sínu sbr. Hegranesvita sem byggður er eftir sömu teikningu.
Heimild: Sjá hérMynd: Rolf
Raufarhafnarviti er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
No reviews have been published yet.
Sign in to rate this place
Raufarhafnarviti er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
We use optional analytics cookies to understand how the website is used.