Tjaldstæðið í Skaftafelli

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Tjaldsvæðið í Skaftafelli er opið frá 1. maí til 30. september. Gestir eru beðnir um að gera vart við sig í þjónustumiðstöð áður en tjaldað er, eða strax að morgni ef komið er eftir lokun. Vakin er athygli á því að hvorki er hægt að leigja tjöld né annan búnað.
Sími: 470 8300, Netfang: skaftafell@vjp.is
Í Skaftafelli eru stæði fyrir um 600 tjöld. Stæði eru ekki tekin frá nema að um 40 manna hópa eða stærri sé að ræða. Sérstök flöt er ætluð fyrir húsbíla, hjólhýsi og fellihýsi. Þar eru tenglar fyrir rafmagn.

Salernisaðstaða er við þjónustumiðstöð og í tveimur þjónustuhúsum á tjaldsvæðinu. Þar eru líka sturtur. Nota þarf 50 kr. mynt í sturturnar og því er gott að hafa næga mynt tiltæka.
Þvottavél og þurrkari er í þvottahúsi við þjónustumiðstöð.
Enginn sérstök eldunaraðstaða er fyrir gesti tjaldsvæðis. Þó eru vaskar undir skyggni við þjónustumiðstöð sem og grill sem gestir mega nota.
Þráðlaust internet er á tjaldsvæðinu. Kaupa þarf aðgang í þjónustumiðstöð.

Verðskráin gildir á tjaldsvæðum þjóðgarðsins í Skaftafelli, Ásbyrgi og Vesturdal

 Gisting á tjaldsvæði (verð per. nótt)
(gistináttaskattur innifalinn)
 
 Fullorðnir  1.200 kr.
 Börn 13-16 ára (í fylgd fullorðinna)  600 kr.
 Börn 12 ára og yngri  0 kr.
   
Önnur þjónusta  
Sturta (hvert skipti) 400 kr.
Rafmagn (1 sólarhringur) 750 kr.
Þvottavél 500 kr.
Þurrkari 500 kr.
Kortabæklingar 500 kr.
Bæklingar 300 kr.
Kynningarbæklingar 150 kr.
Veitt aðstoð (klst.): 10.000 kr.

Hópaafsláttur: 10 manna hópur eða fleiri: 10% afsláttur af gistingu, utan gistináttagjalds, ef staðgreitt. Skilyrði er að hópstjóri greiði fyrir allan hópinn.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Vatnajökulsþjóðgarður

Tjaldstæðið liggur í þjóðgarði.

East Iceland

1,214 Views

Tjaldstæðið í Skaftafelli

Góð aðstaða í stórbrotnu umhverfi.

Algengar spurningar

Hvar er tjaldstæðið í Skaftafelli?
Tjaldstæðið í Skaftafelli er á Suðausturlandi.
Hvað er tjaldstæðið í Skaftafelli?
Það er tjaldsvæði við náttúrusvæði.
Er tjaldstæðið í Skaftafelli vinsælt?
Já, það er þekkt meðal ferðalanga.
Er tjaldstæðið ætlað tjöldum?
Já, svæðið er ætlað til tjaldsetningar.
Er tjaldstæðið í Skaftafelli skipulagt?
Já, það er skipulagt tjaldsvæði.