Seyðisfjarðarkirkja

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

eyðisfjarðarkirkja í núverandi mynd var reist á árunum 1920 til 1922 og vígð í ágústmánuði 1922. Hún er að hluta til smíðuð upp úr eldri kirkju sem stóð á Vestdalseyri fram til 1920.

Nýja kirkjan á Fjarðaröldunni er stærri og veglegri en eldri kirkjan á Vestdalseyri en gluggagerð og ýmis önnur stíleinkenni eru þau sömu. Kvenfélag Seyðisfjarðar sá um alla fjáröflun og umsjón með framkvæmdum og lagði félagið mikinn metnað í kirkjubygginguna. Jón G. Jónasson var fenginn til að teikna hið nýja hús, en hann hafði menntað sig í málaraiðn í Bergen á árunum 1900-1903. Yfirsmiður kirkjunnar var Sigurður Björnsson og með honum vann Stefán Runólfsson á Ósi. Jón Vigfússon múrarameistari lagði grunn kirkjunnar. Kirkjan var vígð 6. ágúst 1922.

Seyðisfjarðarkirkja er yngsti en jafnframt stærsti og glæsilegasti fulltrúi fyrir ákveðna gerð austfirskra timburkirkna sem bera skýr staðbundin einkenni, þ.e. þakturn og stóra smárúðótta bogaglugga. Seyðisfjarðarkirkja ber jafnframt sterk einkenni norskrar timburhúsahefðar sem ráðandi er í gamla bænum á Seyðisfirði og er meðal stærstu og veglegustu fulltrúa bárujárnsklæddra timburkirkna aldamótaáranna.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Anton Stefánsson

Seyðisfjarðarkirkja er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

East Iceland

563 Views

Seyðisfjarðarkirkja

Seyðisfjarðarkirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er Seyðisfjarðarkirkja?
Seyðisfjarðarkirkja er á Seyðisfirði á Austurlandi.
Er Seyðisfjarðarkirkja í þéttbýli?
Já, hún er í þéttbýli.
Er Seyðisfjarðarkirkja starfandi kirkja?
Já, hún er starfandi kirkja.
Er Seyðisfjarðarkirkja hluti af þjóðkirkjunni?
Já, hún tilheyrir þjóðkirkjunni.
Er Seyðisfjarðarkirkja opin almenningi við sérstök tilefni?
Já, hún er opin almenningi við helgihald og viðburði.