Tjaldstæði Seyðisfjarðar

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Tjaldsvæðið á Seyðisfirði er gróið og rómað fyrir góða þjónustu og hlýlegt umhverfi. Í sumar verður tekið í notkun nýtt þjónustuhús þar sem verður bætt aðstaða fyrir gesti, fleiri salerni og sturtur . Eldunaraðstaða og seturstofa verður í nýja þjónustuhúsinu. Á tjaldsvæðinu eru sturtur, salerni, þvottavél, þurrkari, borðsalur, eldunaraðstaða inni , útigrill og aðstaða fyrir húsbíla, þar með talið rafmagn og hreinsiaðstaða fyrir húsbíla-wc. Tjaldsvæðið er hólfað niður með hávöxnu kjarri og í næsta nágrenni er sjoppa, matvöruverslun, sundlaug, matsölustaðir, íþróttamiðstöð, sauna og heitir pottar.
Á Seyðisfirði syngja fossarnir þig í svefn.

Styttri og lengri gönguleiðir, bryggjuveiði og fjöruferð er ánægjuleg afþreying og kostar ekkert annað en úthaldið.

Tjaldsvæði Seyðisfjarðar er aðili að Útilegukortinu, finna má upplýsingar um það hér. Á vef útilegukorsins eru ýmsar gagnlegar upplýsingar um Tjaldsvæði Seyðisfjarðar.

Tjaldsvæðið er staðsett við Ránargötu í hjarta bæjarins. Upplýsingar í síma 472-1521/861-7789

Heimild: Sjá hér
Mynd: Tjaldstæði Seyðisfjarðar

Tjaldstæði Seyðisfjarðar er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

Reviews

Tjaldstæði Seyðisfjarðar

Tjaldstæði Seyðisfjarðar er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er tjaldstæði Seyðisfjarðar?
Tjaldstæði Seyðisfjarðar er á Austurlandi.
Hvað er tjaldstæði Seyðisfjarðar?
Það er tjaldsvæði við þéttbýli.
Er tjaldstæðið í þéttbýli?
Já, það er í eða við þéttbýli.
Er tjaldstæðið ætlað ferðalöngum?
Já, það er ætlað tjaldgestum.
Er tjaldstæði Seyðisfjarðar skipulagt?
Já, það er skipulagt tjaldsvæði.