Bólstaðarhlíðarkirkja

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Bólsstaðarhlíð er gamalt höfuðból, höfðingjasetur og kirkjustaður. Sumir telja að Svartárdalsmynnið, sem Bólstaðarhlíð stendur í, sé Ævarsskarð hið forna.  Ævarsskarð er þá ysia hluti Svartárdals, þar sem hann sveigir til vesturs og opnast á mörkum Blöndudals og Langadals. Norðurlandsvegur liggur hjá Bólstaðarhlíð upp á Vatnsskarð og heitir þar Bólstaðarhlíðarbrekka (Botnastaðabrekka) í daglegu máli. Veðursæld er mikil í Bólstaðarhlíð og festir lítt snjó í fjallinu.

Í Landnámabók segir að Ævar Ketilsson, sem nam Langadal, hafi bíð í Ævarsskarði. Þar eru fornar tóttir.

Í Bólsstaðarhlíð var fyrrum útkirkja frá Bergsstöðum. Þar var kirkja helguð Mikael erkiengli í kaþólskum sið. Bólstaðarhlíðarprestakall var stofnað árið 1970. Til þess heyra kirkjur í Bólstaðarhlíð, á Bergsstöðum, Auðkúlu, Svínavatni og Holtastöðum. 

Núverandi kirkja í Bólstaðarhlíð var vígð 1889.

Heimild: Sjá hér
Mynd: A.More.S

Bólstaðarhlíðarkirkja er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

North Iceland

556 Views

Bólstaðarhlíðarkirkja

Bólstaðarhlíðarkirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er Bólstaðarhlíðarkirkja?
Bólstaðarhlíðarkirkja er á Norðurlandi.
Er Bólstaðarhlíðarkirkja í þéttbýli?
Nei, hún er staðsett utan þéttbýlis.
Er Bólstaðarhlíðarkirkja starfandi kirkja?
Já, hún er starfandi kirkja.
Er Bólstaðarhlíðarkirkja hluti af þjóðkirkjunni?
Já, hún tilheyrir þjóðkirkjunni.
Er Bólstaðarhlíðarkirkja opin almenningi við sérstök tilefni?
Já, hún er opin almenningi við helgihald og viðburði.