Bessastaðakirkja

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Bessastaðakirkja er kirkja á Álftanesi og stendur nokkra tugi metra frá forsetasetrinu á Bessastöðum. Bygging núverandi kirkju hófst 1773 en hún var fullbyggð 1823. Þá lauk turnsmíðinni og hafði kirkjan þá verið hálfa öld í byggingu. Hún var þó vígð árið 1796. Kirkjan var reist úr grjóti sem tekið var úr Gálgahrauni.

Kirkja hefur staðið á Bessastöðum frá því um árið 1200 svo víst sé, en jafnvel allt frá kristnitöku um árið 1000. Steinkirkjan sem nú stendur var byggð utan um eldri timburkirkju sem síðan var rifin.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Jóhanna Kristín Hauksdóttir

Bessastaðakirkja er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

South West Iceland

902 Views

Bessastaðakirkja

Bessastaðakirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er Bessastaðakirkja?
Bessastaðakirkja er á Álftanesi.
Er Bessastaðakirkja í þéttbýli?
Já, hún er í þéttbýli.
Er Bessastaðakirkja starfandi kirkja?
Já, hún er starfandi kirkja.
Er Bessastaðakirkja hluti af þjóðkirkjunni?
Já, hún tilheyrir þjóðkirkjunni.
Er Bessastaðakirkja opin almenningi við sérstök tilefni?
Já, hún er opin almenningi við helgihald og viðburði.