Þingeyrarkirkja er kirkja í Ísafjarðarprófastdæmi. Hún er staðsett í kauptúninu Þingeyri. Hún var byggð á árunum 1909 til 1911 og vígð 9. apríl 1911. Áður var kirkja og prestsetur á Söndum í Þingeyrarhreppi. Prestsetrið var flutt til Þingeyrar árið 1915.
Rögnvaldur Ólafsson teiknaði kirkjuna og er hún úr steini í gotneskum stíl. Rögnvaldur lét kirkjuna snúa í norður og suður til að hún beri vel við þeim sem koma af hafi til Þingeyrar.
Þórarinn B. Þorláksson málaði altaristöflu sem sýnir Krist í íslenskri náttúru og hjá honum standa þrjár stelpur. Skírnarfontur kirkjunnar er útskorinn af Ríkharði Jónssyni. Hjónin Gréta Björnsson og Jón Björnsson skreyttu kirkjuna með ýmsumtrúartáknum árið 1961.
Sandakirkja var í kaþólskum sið helguð heilögum Nikulási og er máluð mynd af honum vinstra megin vil altarið en mynd af Pétri postula hægra megin. Þrír steindir gluggar í kirkjunni eru eftir glerlistakonuna Höllu Haraldsdóttur. Kirkjan á ljósastjaka frá1656 sem komu úr Sandakirkju og fleiri gripi úr Sandakirkju og Hraunskirkju í Keldudal.
Sóknarprestur er Guðrún Edda Gunnarsdóttir.
Heimild: Sjá hérMynd: Lilia Lima
Þingeyrarkirkja er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
No reviews have been published yet.
Sign in to rate this place
Þingeyrarkirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
We use optional analytics cookies to understand how the website is used.