Skútustaðakirkja

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Skútustaðakirkja er timburhús, 10,90 m að lengd og 6,22 m á breidd. Þakið er krossreist og upp af framstafni er ferstrendur tvískiptur turn. Neðri hluti hans er hár og breiður og á honum bryggjumyndað þak. Á því er lágur efri turn með hljómopum og hlera á hverri hlið og íbjúgu píramítaþaki. Kirkjan er klædd slagþili, þak trapisustáli, turnþök sléttu járni og hún stendur á steinsteyptum sökkli. Á hvorri hlið kirkju og hvorum stafni eru þrír gluggar með sex rúðum. Þeir sitja inni í veggjum sem nemur þykkt einangrunar utan á grind. Fyrir kirkjudyrum eru tvöfaldar vængjahurðir og bjór yfir.

Inn af dyrum er gangur, þverbekkir hvorum megin hans en veggbekkir umhverfis í kór. Lágt kórþil er á mörkum framkirkju og kórs og prédikunarstóll framan þess sunnan megin. Í kórdyrum eru áttstrendir kórstafir með mjóum stöfum efst og boga að ofan. Setuloft á bitum er yfir fremri hluta framkirkju og undir því tvær áttstrendar stoðir. Stigi er í norðvesturhorni. Veggir eru klæddir spjaldaþili; þiljur eru í neðri spjöldunum en sléttar plötur í þeim efri. Yfir kirkjunni er skarsúðarloft á sperrum.

Heimild: Sjá hér

Kirkjan stendur í Skútustaðahreppi.

North Iceland

764 Views

Skútustaðakirkja

Nálægt náttúruperlum.

Algengar spurningar

Hvar er Skútustaðakirkja?
Skútustaðakirkja er við Mývatn á Norðurlandi.
Er Skútustaðakirkja í þéttbýli?
Já, hún er í þéttbýli.
Er Skútustaðakirkja starfandi kirkja?
Já, hún er starfandi kirkja.
Er Skútustaðakirkja hluti af þjóðkirkjunni?
Já, hún tilheyrir þjóðkirkjunni.
Er Skútustaðakirkja opin almenningi við sérstök tilefni?
Já, hún er opin almenningi við helgihald og viðburði.