Knappstaðakirkja

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...
Knappsstaðir eru eyðibýli, kirkjustaður og áður prestssetur í Stíflu í Fljótum í Skagafirði, landnámsjörð Þórðar knapps og Æsu Ljótólfsdóttur frá Hofi í Svarfaðardal. Bærinn fór í eyði árið 1974. Hann stendur undir fjalli sem heitir Breiðarkollur og er 932 m á hæð.
Kirkja hefur verið á Knappsstöðum frá því mjög snemma á öldum og þar sátu prestar sóknarinnar. Knappsstaðabrauð þótti þó alltaf með rýrari brauðum, enda er Stífla snjóþung og þótti harðbýl þótt sumarfagurt hafi verið þar áður en Skeiðsfossvirkjun sökkti stórum hluta sveitarinnar undir vatn.
Þann 12. júní 1838 stórskemmdist Knappsstaðakirkja í jarðskjálfta. Ákveðið var að reisa nýja kirkju. Var hún vígð 1840 og er elsta timburkirkja landsins og ein hinna minnstu. Kirkjubyggingin var meðal annars fjármögnuð með því að selja Guðbrandsbiblíu, sem kirkjan átti, og barst hún til útlanda en var síðan gefin aftur til Íslands 1933 og er nú í Landsbókasafni.
Knappsstaðabrauð var lagt niður 1881 og kirkjan lögð undir Barð. Eftir að Stífla fór í eyði að mestu voru sóknirnar sameinaðar og eru síðan tvær kirkjur í Barðssókn. Messað er í kirkjunni einu sinni á ári og eru þær messur jafnan fjölsóttar.

Knappstaðakirkja er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

North Iceland

5,544 Views

Knappstaðakirkja

Knappstaðakirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er Knappstaðakirkja?
Knappstaðakirkja er á Norðurlandi.
Er Knappstaðakirkja í þéttbýli?
Nei, hún er staðsett utan þéttbýlis.
Er Knappstaðakirkja starfandi kirkja?
Já, hún er starfandi kirkja.
Er Knappstaðakirkja hluti af þjóðkirkjunni?
Já, hún tilheyrir þjóðkirkjunni.
Er Knappstaðakirkja opin almenningi við sérstök tilefni?
Já, hún er opin almenningi við helgihald og viðburði.