Kaldrananeskirkja

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Kaldrananeskirkja er friðuð kirkja sem stendur á Kaldrananesi utarlega við sunnanverðan Bjarnarfjörð á Ströndum. Þar var lengi bændakirkja, en kirkjubyggingin sem nú stendur á Kaldrananesi er næstelsta hús Strandasýslu, byggð árið 1851 úr timbri og er klædd með járni. Kirkjan var gefin söfnuðinum um miðja 20. öld.

Í Kaldrananeskirkju er margt góðra gripa. Á kirkjuhurðinni er hringur með áletrun frá 1840. Altiaristaflan er eftir C. Rosenberg og er máluð eftir höggmynd Bertel Thorvaldsen af frelsaranum. Kirkjan á einnig merkan kaleik, patínu (diskur undir oblátur) og tvær klukkur, aðra með ártalinu 1798.

Undanfarin ár hefur hægt og bítandi verið unnið að viðgerðum á kirkjunni. Einnig hefur umhverfi kirkjunnar verið lagfært töluvert, t.d. hlaðinn nýr veggur kringum kirkjugarðinn.

Heimild: Sjá hér
Mynd: A.More.S

Kaldrananeskirkja er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

West Fjords

588 Views

Kaldrananeskirkja

Kaldrananeskirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er Kaldrananeskirkja?
Kaldrananeskirkja er á Vestfjörðum.
Er Kaldrananeskirkja í þéttbýli?
Nei, hún er staðsett utan þéttbýlis.
Er Kaldrananeskirkja starfandi kirkja?
Já, hún er starfandi kirkja.
Er Kaldrananeskirkja hluti af þjóðkirkjunni?
Já, hún tilheyrir þjóðkirkjunni.
Er Kaldrananeskirkja opin almenningi við sérstök tilefni?
Já, hún er opin almenningi við helgihald og viðburði.