Búrfell er 669 metra hár móbergstapi í Þjórsárdal. Fjallið hefur myndast undir jökli ísaldar og er annar útvörður Þjórsárdals. Þjórsár rennur austan með fjallinu og við suðurenda þess eru fossarnir Tröllkonuhlaup og Þjófafoss í ánni. Nú hefur Þjórsá verið virkjuð við Búrfell og er svokallað Bjarnalón norðaustan við fjallið. Fallorkan nýtist í Búrfellsvirkjun.
Búrfell er bratt á alla kanta, þó síst að norðan en þar liggur vegur upp á topp fjallsins. Þar er endurvarpsstöð fyrir farsíma. Við suðurenda fjallsins er öxl nokkur skógi vaxin og kallast þessi birkiskógurBúrfellsskógur. Gnúpverja hafa í gegnum aldirnar haft skógarítök í Búrfellsskógi. Kristinn Jónsson, frá Úlfsá í Eyjafirði, sem gekk villu vegar suður Sprengisand árið 1889 fannst í Búrfellsskógi af Skriðufellsbændum sem voru við skógarhögg.
Austan í Búrfellshásli er gil eða gróf sem kallast Stórkonugróf og hefur þar fundist leifar fornrar smiðju.
Heimild: Sjá hérMynd: Anton Stefánsson
Búrfell er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
No reviews have been published yet.
Sign in to rate this place
Búrfell er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
We use optional analytics cookies to understand how the website is used.