Churchs

Discover Iceland

Búðakirkja

Ósk
I've seen it
RegionWest Iceland
Visits763 Views
DirectionsOpen in maps

Sorry, english text is not ready...

Búðakirkja er timburhús, 9,23 m að lengd og 5,27 m á breidd. Þakið er krossreist og upp af vesturstafni er ferstrendur turn með hátt píramítaþak. Kirkjan er klædd slagþili en þak rennisúð og stendur á steinsteyptum sökkli. Á hvorri hlið kirkju eru þrír gluggar og tveir á kórbaki. Í þeim er einn rammi með tólf rúður, þær efstu lágbogadregnar, og lágreistur bjór yfir. Fyrir kirkjudyrum eru tvöfaldar vængjahurðir, rismikill bjór yfir og hálfsúlur undir honum hvorum megin dyra.

Gangur er inn af kirkjudyrum og bekkir hvorum megin hans en veggbekkir umhverfis í kór. Kórþil klætt spjaldaþili er í baki innstu bekkja og ferstrendir kórstafir í kórdyrum. Prédikunarstóll er framan kórþils sunnan megin í framkirkju. Söngloft á bitum er yfir fremsta hluta framkirkju og stigi við framgafl sunnan megin. Veggir eru klæddir spjaldaþili, þverbitar eru yfir allri kirkju og loft opið upp í rjáfur, klætt skarsúð á sperrur.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Helga

Búðakirkja er eitt þekktasta kennileiti Snæfellsness.

Churches of Iceland

Church information

Built1847
Construction started1847
Building materialTimber
Dimensions9.23 × 5.27 m
TowerYes
Protected statusProtected since 1990
View source

Ratings and reviews

Búðakirkja

Kirkjan stendur í Búðum og er vinsæl meðal ferðamanna.

Algengar spurningar

Hvar er Búðakirkja?
Búðakirkja er á Snæfellsnesi.
Er Búðakirkja í þéttbýli?
Nei, hún er staðsett utan þéttbýlis.
Er Búðakirkja starfandi kirkja?
Já, hún er starfandi kirkja.
Er Búðakirkja hluti af þjóðkirkjunni?
Já, hún tilheyrir þjóðkirkjunni.
Er Búðakirkja opin almenningi við sérstök tilefni?
Já, hún er opin almenningi við helgihald og viðburði.