Borgarneskirkja

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Bygging Borgarneskirkju hófst í maí 1953. Halldór H. Jónsson teiknaði kirkjuna og Sigurður Gíslason byggingameistari annaðist smíði hennar.  Forystu fyrir bygginganefnd hafði Halldór Sigurðsson sparisjóðsstjóri. Ásmundur Guðmundsson, biskup Íslands, vígði kirkjuna á uppstigningadag, 7. maí 1959. Kirkjan er steinsteypt og tekur 200 manns í sæti. Meðal athyglisverðra muna í kirkjunni eru: altarisdúkur og klæði eftir Sigrúnu Jónsdóttur, kaleikur og patína gefin af Margréti og Thor Jenssen. Trékross er yfir altari. Skírnarfonturinn er útskorinn af bræðrunum Kristjáni og Hannesi Vigfússonum á Akureyri. Skírnarskálin er úr messing. Í kirkjunni er pípuorgel, 13 radda frá Walker í Þýskalandi. Það kom í kirkjuna 1967. Einnig er flygill í kirkjunni og fer tónleikahald í Borgarnesi þar oft fram. (Heimild: Byggðir Borgarfjarðar III, 337-338).
Borgarneskirkja er falleg bygging teiknuð af Halldóri H. Jónssyni. Framkvæmdir við hana hófust 1953 en hún var vígð árið 1959. Gagngerar endurbætur voru gerðar á kirkjunni á árunum 1992-93.

Heimild: Sjá hér

Kirkjan stendur í miðbænum.

West Iceland

878 Views

Borgarnesskirkja

Hluti af bæjarmyndinni.

Algengar spurningar

Hvar er Borgarneskirkja?
Borgarneskirkja er í Borgarnesi á Vesturlandi.
Er Borgarneskirkja í þéttbýli?
Já, hún er í þéttbýli.
Er Borgarneskirkja starfandi kirkja?
Já, hún er starfandi kirkja.
Er Borgarneskirkja hluti af þjóðkirkjunni?
Já, hún tilheyrir þjóðkirkjunni.
Er Borgarneskirkja opin almenningi við sérstök tilefni?
Já, hún er opin almenningi við helgihald og viðburði.