Borgarkirkja

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Borgarkirkja er timburhús, 9,80 m að lengd og 6,45 m á breidd, með forkirkju undir minna formi, 2,56 m að lengd og 2,78 m á breidd. Þakið er krossreist, klætt bárujárni, og upp af framstafni er ferstrendur turn með risþaki. Hann stendur á lágum stalli. Kirkjan er klædd listaþili og stendur á steinsteyptum sökkli. Á hvorri hlið kirkjunnar eru fjórir póstagluggar með þriggja rúðu römmum og einn heldur minni á framstafni. Fyrir kirkjudyrum er spjaldahurð og þvergluggi og brík yfir.

Að framkirkju eru spjaldsettar vængjahurðir og gangur inn af þeim og bekkir hvorum megin hans. Tvær innstu bekkjaraðirnar eru styttri en aðrir kirkjubekkir. Söngloft er yfir fremsta hluta framkirkju og stigi við framgafl norðan megin. Veggir eru klæddir spjaldaþili og borðaklædd hvelfing er yfir kirkjunni stafna á milli.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Anton Stefánsson

Borgarkirkja er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

West Iceland

640 Views

Borgarkirkja

Borgarkirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er Borgarkirkja?
Borgarkirkja er á Borgarnesi á Vesturlandi.
Er Borgarkirkja í þéttbýli?
Já, hún er í þéttbýli.
Er Borgarkirkja starfandi kirkja?
Já, hún er starfandi kirkja.
Er Borgarkirkja hluti af þjóðkirkjunni?
Já, hún tilheyrir þjóðkirkjunni.
Er Borgarkirkja opin almenningi við sérstök tilefni?
Já, hún er opin almenningi við helgihald og viðburði.