Ásvallalaug er ein sú stærsta á landinu eða um 6.000 m² . Í húsnæðinu er einnig heilsuræktarstöðin Hress, Ásmegin sjúkraþjálfun og félagsaðstaða Sundfélags Hafnarfjarðar og íþróttafélagsins Fjarðar. Sundlaugin er með 50 metra sundlaug sem er skipt í tvennt, annar helmingurinn er 50 m að lengd og hinn helmingurinn er 25m. í lauginni er einnig barnalaug sem er 17 metrar (90-110cm djúp) og 10 metra vaðlaug með leikföngum. Hitastigið í salnum er ávalt um 30°, barnalaugin er um 32° og sunlaugin 28°. Innanhúss er einnig vatnsrennibraut, þrír heitir pottar og eimbað. Utandyra eru tveir heitir pottar og sólbaðsaðstaða. Í Ásvallalaug er hefðbundið skólasund og sundæfingar félaganna en einnig er blak, waterpolo, æfingar köfunarfélaga, æfingar kajakræðara, námskeið í bættum sundstíl, námskeið fyrir verðandi og nýbakaðar mæður, undbarnasund, vatnsleikfimi ofl.
Ásvallalaug er hluti af íþróttamiðstöð.
No reviews have been published yet.
Sign in to rate this place
Hentar öllum aldurshópum.
We use optional analytics cookies to understand how the website is used.