Áskirkja í Reykjavík

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Ásprestakall er í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra og afmarkast af Holtavegi, Suðurlandsbraut, Reykjavegi, Sundlaugavegi og Dalbraut.

 

Ássöfnuður var stofnaður á fundi í Laugarásbíói 22. september árið 1963 og á þeim fundi var fyrsta sóknarnefndin kjörin. Samkvæmt skráðum heimildum voru helstu rökin fyrir stofnun Ásprestakalls þau að innan marka þess voru þá búsettir 4000 íbúar og fjölmennt elliheimili Hrafnista var risið og stækkun þess fyrirhuguð. Einnig var ráðgert að reisa fleiri íbúðir og þjónustustofnanir fyrir aldraða í sókninni. Auk þess var stórt sjúkrahús, Kleppsspítali í prestakallinu. Eðlilegt þótti að tengja brýna prestsþjónustu á þessum stofnunum hóflega stórri sókn, en sóknirnar beggja vegna sóknarmarkanna þóttu of fjölmennar til að bæta slíkri þjónustu á þær. Nú á síðustu árum hafa þær breytingar orðið að Hrafnista í Reykjavík hefur fengið heimilisprest og Kleppsspítali fellur undir verksvið sjúkrahússpresta. Hinsvegar hefur hjúkrunarheimilið Skjól bæst við þjónustu Áskirkju, ásamt þjónustuíbúðum aldraðra á Dalbraut 21-27 og Norðurbrún 1 einnig Fríðuhús, sem er dagvistun fyrir Alzheimersjúklinga. Íbúatala sóknarinnar hefur lítið breyst og telur nú liðlega 4100 íbúa.

Heimild: http://www.askirkja.is

Kirkjan er hluti af samfélaginu.

South West Iceland

652 Views

Áskirkja

Hún stendur í grónu hverfi.

Algengar spurningar

Hvar er Áskirkja?
Áskirkja er í Reykjavík.
Er Áskirkja í þéttbýli?
Já, hún er í þéttbýli.
Er Áskirkja starfandi kirkja?
Já, hún er starfandi kirkja.
Er Áskirkja hluti af þjóðkirkjunni?
Já, hún tilheyrir þjóðkirkjunni.
Er Áskirkja opin almenningi við sérstök tilefni?
Já, hún er opin almenningi við helgihald og viðburði.