Útskálakirkja er timburhús, 15,55 m að lengd og 7,25 m á breidd, með forkirkju, 3,17 m að lengd og 6,50 m á breidd. Þak kirkju er krossreist og hálfvalmi yfir kórbaki en brotaþak á forkirkju. Upp af vesturstafni er ferstrendur turn með íbjúgt píramítaþak. Hann stendur á lágum stalli og á framhlið turns er hljómop með hlera. Randskornar vindskeiðar eru undir þakskeggi turns og þakbrún forkirkju. Kirkjan er bárujárnsklædd og stendur á steinhlöðnum sökkli. Á hvorri hlið kirkju eru fimm gluggar með sex rúðum og lítill gluggi á vesturstafni yfir forkirkju. Fyrir kirkjudyrum eru tvöfaldar vængjahurðir og bogagluggi yfir.
Friðuð 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.Forkirkja var stækkuð árið 1975.
Breytingar: Kirkjan var í öndverðu öll klædd listaþili og listasúð en klædd bárujárni í áföngum 1889-1917 en norðurhlið kirkju ekki fyrr en um 1961. Kirkjan var lengd til austurs 1895 um 4½ alin og smíðuð við hana forkirkja.
Mynd: A.More.S
Útskálakirkja er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
No reviews have been published yet.
Sign in to rate this place
Útskálakirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
We use optional analytics cookies to understand how the website is used.