Ný útisundlaug opnaði miðvikudaginn 16. júní. Sundlaugin er 25 x 8,5 metrar að stærð, tveir heitir pottar, gufa, vaðlaug og tvær stórar rennibrautir, önnur er bein braut með um 30% halla en hin er með um 11,5% halla og er mun lengri.Umhverfisvænar lausnir notaðar í nýrri sundlaug Blönduósbæjar
Blönduósbær festi kaup á búnaði til framleiðslu á klór í tengslum við byggingu sundlaugar á Blönduósi. Jafnframt fellur til sódi við framleiðsluna sem notaður er til að stýra sýrustiginu (ph-gildi) og þarf því ekki að vera með kolsýru sem annars er notuð í þeim tilgangi. Klór er notaður til sótthreinsunar á sundlaugarvatni og er yfirleitt keypur tilbúinn og er blandað í vatnið eftir því magni sem þarf til sótthreinsunar. Samkvæmt reglugerð á sundlaugarvatn að hafa sýrustigið á milli 7,2-7,8. Kolsýra er notuð til að lækka sýrustigið þar sem tilbúinn klór hefur hátt sýrustig.
Opnunartímar Frá og með 1. nóvember.Þriðjudaga og fimmtudaga er opið frá kl.07:45 til 21:00Mánudaga og miðvikudaga er opið frá kl. 06:30 til 21:00Föstudaga er opið frá kl. 06:30 til 17:00Laugardaga er opið frá kl. 10:00 til 16:00Sunnudaga er lokað
Heimild: Sjá hérMynd: Sundlaugin Blönduósar
Sundlaugin Blönduósi er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
No reviews have been published yet.
Sign in to rate this place
Sundlaugin Blönduósi er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
We use optional analytics cookies to understand how the website is used.