Sundlaug Akureyrar

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...

Sundlaug Akureyrar er vatnaparadís á heimsmælikvarða fyrir alla fjölskylduna. Sundlaugarnar eru tvær. Á svæðinu er að finna tvær 25 metra útilaugar og 12,5 metra innilaug. Í boði eru tvær rennibrautir, busllaug, þrír heitir pottar úti og einn innipottur, eimbað og gufubað.

Sérstakir karlatímar eru í gufubaðið á miðvikudögum kl. 15-21 og föstudögum kl. 14-21 og kvennatímar þriðjudögum og fimmtudögum kl. 15-21. Á öðrum tímum er hægt að panta tíma í gufuna.

Á sumrin er rekinn fjölskyldugarður með fjölbreyttum tækjum fyrir yngri kynslóðina á sundlaugarsvæðinu. Þar má meðal annars finna trambolín, hoppidýnu, rafmagnsbíla, minigolf og ýmiss önnur spennandi leiktæki. Opið 10.00-17.00 alla daga.

Afgreiðslutími Sundlaugar Akureyrar:

Sumar (28. maí - 1. september)
Mánudaga til föstudaga 6.45-21.00
Laugardaga og sunnudaga 8.00-19.30

Vetur (2. september - 27. maí)
Mánudaga til föstudaga 6:45-21:00
Laugardaga og sunnudaga 10:00-18:30

Fullorðnir       470
Börn (6-15 ára)     150

Heimild: Sjá hér
Mynd: www.akureyri.is

Laugin er vinsæl meðal bæjarbúa.

East Iceland

2,349 Views

Sundlaug Akureyrar

Býður upp á fjölbreytta aðstöðu.

Algengar spurningar

Hvar er sundlaug Akureyrar?
Sundlaug Akureyrar er á Norðurlandi.
Er sundlaug Akureyrar í þéttbýli?
Já, hún er í þéttbýli.
Er sundlaug Akureyrar opin almenningi?
Já, hún er opin almenningi.
Er sundlaug Akureyrar skipulögð baðaðstaða?
Já, hún er skipulögð sundlaug.
Er sundlaug Akureyrar rekin af sveitarfélagi?
Já, hún er rekin á vegum sveitarfélags.