Reynistaðarkirkja er timburhús, 9,27 m að lengd og 5,49 m á breidd, með forkirkju, 1,76 m að lengd og 2,54 m á breidd. Þakið er krossreist og upp af framstafni er ferstrendur turn með risþak en rislítið þak er á forkirkju. Á hverri hlið hans er bogadregið hljómop með vængjahlerum og undir þeim band umhverfis turninn. Hann stendur á lágum stalli. Kirkjan er klædd standandi plægðri borðaklæningu, strikaðri á brúnum, þök bárujárni og stendur á steinhlöðnum og steinsteyptum sökkli. Á hvorri hlið kirkju eru þrír gluggar, þrír á kórbaki; einn hvorum megin altaris og einn heldur minni ofarlega á stafninum yfir prédikunarstól. Gluggi er á framstafni og annar á suðurhlið forkirkju. Í þeim er miðpóstur og tveir þriggja rúðu rammar. Strikaðar bríkur eru yfir gluggum. Fyrir kirkjudyrum eru spjaldsettar vængjahurðir.
Heimild: Sjá hérMynd: A.More.S
Reynistaðarkirkja er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
No reviews have been published yet.
Sign in to rate this place
Reynistaðarkirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
We use optional analytics cookies to understand how the website is used.