Laugarhóll

Ósk
Séð

Sorry, english text is not ready...
Hótel Laugarhóll er fjölskyldurekið gistihús í Bjarnarfirði, gróðursælum dal á Ströndum, miðja vegu milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Boðið er upp á gistingu í eins, tveggja og þriggja manna herbergjum með eða án sér snyrtingar. Einnig er tekið á móti hópum, allt að 40 manns, í uppbúin rúm. Á Laugarhóli er heimilislegur veitingastaður, notaleg setustofa með ókeypis nettengingu, íþróttasalur, ylvolg sundlaug og heitur náttúrupottur. Skammt frá er tjaldsvæði með rennandi vatni og salernum. Utan háannatíma, október til apríl, hentar staðurinn einstaklega vel til funda-, námskeiða- og ráðstefnuhalds og ekki síður fyrir hugleiðslu-, jóga-, gönguskíða-, íþrótta- og leikhópa, og sem æfingabúðir fyrir björgunarsveitir eða kóra og aðra tónlistarmenn.

Laugarhóll er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.

West Fjords

3,698 Views

Laugarhóll

Laugarhóll er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar

Hvar er Laugarhóll?
Laugarhóll er á Vestfjörðum.
Er Laugarhóll í þéttbýli?
Nei, hann er staðsettur utan þéttbýlis.
Er Laugarhóll opinn almenningi?
Já, hann er opinn gestum.
Er Laugarhóll hefðbundin sundlaug?
Nei, hann er ekki hefðbundin sundlaug.
Er Laugarhóll tengdur jarðhita?
Já, hann tengist jarðhita.