Hvammskirkja er timburhús, 7,67 m að lengd og 5,66 m á breidd. Þakið er krossreist og upp af framstafni er ferstrendur turn með krossreistu þaki. Kirkjuveggir eru klæddir listaþili en þök bárujárni. Hún stendur á steinhlöðnum og steinsteyptum sökklinum og er stöguð niður á hornum. Á hvorri hlið kirkju eru tveir gluggar og einn heldur minni á framstafni. Í þeim er miðpóstur og tveir þriggja rúðu rammar. Hljómop með hlera fyrir er á framhlið turns. Fyrir kirkjudyrum er spjaldsett hurð.
Inn af dyrum er gangur og aftursættir þverbekkir hvorum megin hans en veggbekkir umhverfis í kór. Yfir fremsta stafgólfi framkirkju er afþiljað loft og stigi við framgafl norðan megin. Veggir eru klæddir strikuðum panelborðum og efst á þeim er ávöl sylla. Yfir innri hluta framkirkju og kór er panelklædd oddbogahvelfing. Byggingarár: 1892.
Heimild: Sjá hérMynd: A.More.S
Hvammskirkja er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
No reviews have been published yet.
Sign in to rate this place
Hvammskirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
We use optional analytics cookies to understand how the website is used.